Dagatal 2012

Nú er árið 2012 alveg að fara að skella á. Margir eru að leita að íslensku dagatali eða almanaki til þess að geta notað á iCloud, mökkum, iPad, Google Calendar og fleira.
Hérna er í það minnsta dagatal sem hægt er að tengja inn makka– og iPad / iPhone megin. Og eins er krækja fyrir vikunúmerin hér.
Þeir sem nú þegar eru tengdir þessu í áskrift þurfa að tengja aftur því iCloud notar aðra slóð að áskriftum.
Þetta kemur yfirleitt ekki rétt með íslenskum stöfum inn í Google Calendar, en fyrir þá sem nota það er hægt að hala niður skránni fyrir 2012 hér og fyrir vikunúmerin hér. Þegar skráin er komin niður er farið inn í Google Calendar og í Add Calendar>Import
Ég uppfæri þessar skrár árlega þannig að þeir sem nota ics skrárnar þurfa að sækja nýjar árlega, en þeir sem nota iCal áskriftina þurfa ekki að hugsa neitt meira um það. Meiri upplýsingar um þetta er að finna í öðrum færslum (leita bara að Dagatal).
Ég læt að gamni fylgja með umsögn ánægðs notanda sem birtist á Twitter:

Vona að þetta gagnist mörgum öðrum.


